SOS uppeldisnámskeið

- Leiðir til að auka æskilega hegðun barna

- Helstu aðferðir til að stöðva óæskilega hegðun barna

 

Félagsvísindastofnun hefur frá árinu 2000 haft umsjón með SOS uppeldisnámskeiðunum sem hannað er af sálfræðingnum Dr. Lynn Clark.

Foreldrar sem læra SOS uppeldisaðferðir fá gagnlegt tæki í hendurnar til að takast á við uppeldi barna sinna.

Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um hvernig skýr skilaboð efla foreldrahlutverkið, aðferðir til að efla æskilega hegðun og draga úr óæskilegri hegðun, auk þess sem farið verður í grundvallaratriði í notkun hlés (time out).

Þátttakendur mæta einu sinni í viku í sex skipti, 2,5 klst í senn. Námskeiðsgögn eru bók Dr. Lynn Clark, SOS - Hjálp fyrir foreldra, TOPI spurningalisti (sjálfspróf) o.fl.

Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum og umræðum auk þess sem sýnd eru dæmi um samskipti foreldra og barna á myndbandi. Þátttakendur fá tíma til að lesa bókina og æfa aðferðina sjálfir á milli kennslustunda. Einnig gefst þátttakendum kostur á að ræða reynslu sína í tímum og fá leiðsögn. Nánari lýsingu á námskeiðinu má nálgast hér.

Námskeiðahald er háð eftirspurn. Því er mikilvægt að áhugasamir skrái sig sem fyrst.

Verð:

19.900 kr. fyrir eitt foreldri.

29.900 kr. fyrir báða foreldra/par.

29.900 kr. fyrir fagfólk, t.d. starfsfólk stofnana.

 
SOS namskeid